Sólin birtist alltaf aftur.

Ég er farin að sjá sólina og björtu hliðarnar aftur, nú er vissum kafla lokið og það tókst að ljúka honum eins vel og hægt var, svo að nú er hægt að halda áfram.

Ég hef verið dugleg við að æfa mig fyrir gönguna 23-25 júlí ,þá förum við Sveinstind- Skælinga- Hólaskjól- hlakka bara til :) en bakið mitt er eitthvað að angra mig, læt sprauta meira í það og þá ætti það að lagast aftur.

Ég sé alltaf betur og betur hvað ég er vel gift, ekki aðeins frábærum manni heldur er tengdafjölskyldan mín frábær, þau mæta alltaf öll og hjálpa eins og þau geta.

Ég ætla að halda áfram að æfa mig í göngunum og sinna heimilinu og garðinum og fara helst ekkert að heiman, þar sem ég hef engar fastar ferðir, hvorki í sjúkraþjálfun eða að keyra Söndru á leiklistarnámskeið.  Svo ætla ég að liggja eins mikið og ég get í hengirúminu minu nýja sem ég keypti í Tiger.

Letiknús

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband