Prófin yfirstaðin...í bili

LoLJæja þá eru prófin búin og engin prófalestur meira, nema í þeim sem ég tel mig hafa fallið íBlush.

En mikið ósköp er gott að geta bara sest niður án þess að hafa samviskubit yfir því að vera ekki að læra.  Það létti bara helling á öllu fjölskyldulífinu þegar síðasta prófinu lauk, nema hvað mér fannst mér ekki ganga nógu vel í því svo að föstudeginum var eytt í rúminu í fullvissu um að ég væri ömurlega vitlaus og gæti ekkert lært! Devil

En laugardagurinn rann upp bjartur og fagur og þá var það búið ( hefði tekið lengri tíma áður fyrr) og við eyddum deginum saman og í góðra vina hópi og meira að segja fékk mér rauðvín með matnum og grand mariner á eftir enda var ég komin í kippinn þegar var búin með 3 rauðvínsglös og eitt grand staup.  Ég er þvílík óreglumanneskja,því að það er örugglega margir mánuðir síðan, ef ekki ár síðan ég drakk svona mikið, það er bara engin regla á þessu hjá mérTounge

Núna er verið að skipuleggja göngur sumarsins og er þá Laugavegurinn aðalmálið, en svo erum við að skoða aðrar göngur eins og að fara á Heklu, og Skjaldbreiði og fleira.  Ég ætla með í þessar göngur en það sem púkinn minn ólmast á öxlinni á mér: ÞÉR TEKST ÞETTA ALDREI, ÞAÐ ER ALVEG EINS GOTT AÐ SLEPPA ÞESSU, ÞÚ HEFUR EKKERT Í ÞETTA AÐ GERA. En núna ætla ég ekkert að hlusta á hann, ég ætla í þessar göngur og hananú!  Langhelgisgæslan hefur aldrei þurft að sækja mig neitt, þannig að ég á það bara inni!LoL Ég ætla að vera rosadugleg að æfa mig, bæði í fjalllendi og móum þannig að ég  rúlla þessu upp!

Ég ætla að stoppa hérna, það birtist örugglega á facebook þegar ég fæ einkunnirnar.

Knús á línuna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já bara æðislegt að vera búin í prófum...and no more próf fyrr en ég fer aftur að læra

Sigga (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband