1.2.2010 | 13:07
Meiri kvíði.....
Mér líður bara skelfilega þessa dagana, kvíðinn er að bera mig ofurliði svo að ég er búin að taka inn kvíðalyfin sem gera mig mjög syfjaða en ætla að vona að ástandið lagist við það. En mér finnst ég einhvern vegin ekki koma mér að verki, geri allt annað en það sem ég á að gera. Það hrannast upp fyrirlestrar og ég einhvern vegin kem mér ekki að verki. Ég verð að reyna að skipuleggja mig og gera einhvert tímaplan svo að þetta gangi. Samt er þetta dádið fyndið því að ég er alltaf að brýna fyrir syni mínum sem er oft kvíðinn að skipuleggja sig og ég hef meira að segja gert tíma plan fyrir hann! Og mér finnst ég alltaf að vera að svíkjast um. En í dag ætla ég að gera plan til að vinna upp það sem ég er komin eftir á með og koma skipulagi á vinnuna svo að þetta gangi betur.
Það er búið að vera frekar mikið álag á mér undanfarið en það er búið svo að ég ætti að geta farið að slaka á.
Knús og kram
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.