hausinn...

er fullur af gagnslausum upplýsingum, áðan sagði ég Söndru allt um fílamanninn en man ómögulega það sem ég þarf að vita um tölfræðiGetLost.  Merkilegt hvernig hugurinn lætur!!

En það styttist í því að heilinn geti farið í hlutlausann þ.e.a.s ef ég næ öllu og þarf ekki að taka neitt aftur í endann á maíWhistling, held reyndar að allir á heimilinu leggist á bæn á meðan ég er í prófi því að það er óneitanlega mikið álag á allri fjölskyldunni þegar ég sit og læri og óskapast þess á milli yfir því hvað ég er vitlaus og hvað ég haldi eiginlega að ég sé að gera með að fara í háskólanám eins vitlaus og ég er.

En þetta líður allt saman og bráðlega get ég farið að telja og kyngreina minklinga, ( við Sandra ákvöðum að breyta nafninu á hvolpunum í minklinga Tounges.br. kettlinga).  En fyrst næ ég þessum Devilprófum og síðan ætla ég að eiga einn dag á náttfötunum og lesa skáldsögu og SÍÐAN gera eitthvað af viti.

Knús á línuna og hugsið tölfræðilega til mín ámilli 14 0g 17 á morgun


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband