Náði öllu...

Jæja búin að fá út úr prófunum.... 7 í ísl 503 ( sjálfstætt fólk), 8 í ísl 613, sálfr og ensku, 9 í spænsku.  Nokkuð ánægð bara, alltaf ímynda ég mér verri niðurstöðu og er frekar hissa á þessari því að mér finnst ég aldrei geta neitt.Joyful

Smá lægð hérna, ætli hún hafi ekki komið með hinum lægðunum sem stjórna þessu andjólalega veðri hérAngry  Ég væri alveg til í smá snjó og stillur, bjart og fallegt veður í stað þessa mjög svo blauta og hraða logns sem hér ríkir um þessar mundirWink.  En vonandi gengur þessi lægð hjá mér yfir eins hratt og hinar, ég ætlaði að gera svo margt, en finn enga löngun til að gera neitt.  Sem betur fer á ég duglega dóttur sem bakar fyrir mig og það þarf ekki að þrífa allt vegna þess að það sést ekki neinn skítur í þessu myrkriCool.

Þetta verður orðið gott á morgun.

Hafið það sem best.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf

Flottar einkanir hjá þér !!!   Bestu kveðjur til þín.

Ólöf , 17.12.2007 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband