3.5.2007 | 13:03
prófa aftur með myndir
Hér er spennan í hámarki, Liverpool yfir 1-0 og liðin jöfn eftir tvo leiki svo að leikurinn fór í framlengingu.
Komin í vítaspyrnukeppni, Pepe Reyna ( stafsetning ekki alveg á hreinu) varði 2-0 f Liverpool
Hann varði aftur, Liverpool búið að vinna.
Það kom að því að ég sæti yfir fótbolta leik, en reyndar horfði ég ekki á fótboltan heldur alveg í hina áttina, svo á þetta að vera fullorðið fólk!
Reyndar var hann ekki einn heldur var annar jafngáfulegur
Gaman að þessu
En úr því að ég get orðið sett myndir hér þá ætla ég að setja eitt myndband af fimleikastelpunni
Þetta eru Sandra og Júlía að dansa.
Læt þetta duga í bili................farin í göngutúr, bara stuttan
Athugasemdir
Sandra ekkert smá flott í fimleikunum...
Og hinir dúddarnir sem sátu yfir fótboltanum...snillingar
Það vantar ekki tilfinningamómentin hjá þeim og svipbrigðin...lifa sig gjörsamlega inn í þetta
Og þú dugleg að labba...ég er að reyna að taka mig á með Sæunni vinkonu! Fórum út að labba í gær og fórum einhverja 6 km...ætlum svo í sund í kvöld og synda (og að sjálfsögðu slaka á í pottinum líka
) Svo er ég í þessu dæmi...hjólað í vinnuna en það tekur nú ekki nema ca. 2-3 mínútur fyrir mig...en það er sama...ég hjóla hahahaha
Sjáumst svo á laugardaginn...hlakka bara til að koma!!
Fríður (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 15:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.